Musteri heilsunnar

Hér má líta kvæði sem flutt var við opnun heilsuhælis N.L.F.Í. sunnudaginn 24.júlí 1955.

Nú upp í bláloftin heið og há
er hafið framtíðarblysið,
og miskunnar grunni og mannvits á
hér musteri heilsunnar líta má
sem rósblóm, frá hjarni risið!

Þetta hljómar sem ljúflingslag
og lyft var hér Grettistaki.
Vér hyllum Jónas af hjarta í dag.
Hamingjudísir með gleðibrag
yfir honum og hælinu vaki!

Gretar Fells.

Related posts

Bleik október hugleiðing

Snyrtivörur og aðrar eitraðar vörur í umhverfi okkar

Forvarnir okkar eru að falla – Fljótum sofandi að feigðarósi