Góð andleg heilsa – Mikilvægasti þátturinn í heilbrigðu lífi

Við lesum endalausa pistla og bækur um að við eigum að huga að heilsunni með því að borða hollt og hreyfa okkur reglulega. Þetta vitum við öll en þáttur sem gleymist oft þegar talað erum heilsu er andlega hliðin á heilsunni. Við erum einfaldlega ekki fullkomlega heilbrigð án andlegrar heilsu.

Alltof margir rugla saman heilsu og útliti. Við getum verið 10 kg of þungt og lífið brosið við okkur, við erum hamingjusöm, eigum góða vini og fjöldskyldu og erum í skemmtilegri vinnu. Einnig getum við verið vaxin eins og súpermódel en samt erum við óhamingjusöm og viðrumst ekki finna ánægju í lífinu.

Ég starfa við það sem næringarfræðingur að leiðbeina fólki í átt að hollari matarvenjum en flestar slæmar matarvenjur byrja í hausum og vegna þess að andlega heilsan er ekki góð. Þegar við erum stressuð, kvíðin, útbrunninn og einmanna gleymast oft góðar reglur sem við höfum sett okkur í mataræðinu. Heilinn er einfaldlega stjórnstöðin sem stýrir öllu okkar lífi og meðal annars því hvað við borðum.

En hvernig hugum við að andlegu heilsunni? Hér fyrir neðan eru nokkrið góðar punktar til að hafa í huga að innihaldsríku og heilbrigðu lífi.

Hugum að hamingju okkar
Hugum að hamingju okkar á hverjum einasta degi.  Eini tilgangur þessa lífs er að vera hamingjusamur/söm! Tónlistarmaðurinn Jónas Sigurðsson segir í lagi sínu „Hamingjan er hér“ og þetta ættum við að syngja á hverjum einasta morgni og leyfa öllum í kringum okkur að heyra.  Finnum það sem veitir okkur hamingju og ræktum það og látum engan eða ekkert stoppa okkur í því að lifa sem hamingjuríkustu lífi.

Áhugamál
Mikilvægt er að hafa áhugamál sem við getum hlakkað til og gleðja okkur. Öll höfum við hæfileika á einhverjum sviðum og það er gaman þegar maður sér hæfileika sína blómstra í áhugamálum sínum.

Starfsánægja
Það er mikil hamingja fólgin í því að finna starf sem þú hlakkar til að mæta í á hverjum degi. Alltof margir eru í störfum í sem virðast ekki veita þeim eina einustu gleði eða ánægju.  Ég rekst daglega á fólk sem virðast ekki hafa neina ánægju af starfi sínu. Hvers vegna að eyða 8 klukkustundum á dag í eitthvað sem okkur finnst hundleiðinlegt?  Þetta er líka oft spurning um hugarfar.  Ef við segjum við sjálf okkur á morgnana að þetta verði góður dagur í vinnunni (eða bara lífinu) þá aukast líkurnar á því að svo verði.

Verum vinir okkar og hrósum okkur
Flest erum við  okkar verstu gagnrýendur. Við dæmum sjálf okkur og gerum meiri kröfur til okkar en við gerum til nokkurs annars í lífi okkar. Spáum í það hvernig við tölum við okkur sjálf, mundum við tala svona við góða vini okkar?  Við verðum að fara að klappa okkur sjálfum á öxlina fyrir það sem við erum og höfum gert í stað þess að vera alltaf að tala okkur niður.
Prófaðu að fylla hægri vasann af 20 einnar krónu myntum að morgni og færðu eina krónu yfir í vinstri vasa í hvert skipti sem þú talar þig niður t.d með því að hugsa „vá hvað ég er feit/feitur, hárið á mér er ógeð“. Mjög margir verða búnir með allar 20 krónurnar í hægri vasanum fyrir hádegi. Ef gefur þér klapp á bakið eða talar fallega um sjálfa/n þig máttu setja krónu úr vinstri vasa í hægri J

Látum drauma okkar rætast
Þetta er stórt atriði í því að lifa hamingjuríku lífi. Við eigum okkur öll drauma og þrár. Skrifum niður drauma okkur og gerum allt til að láta þá rætast. Þetta geta verið stórir og litlir draumar og jafnvel mjög langsóttir draumar, því án drauma erum við ekki neitt!  Það er allt hægt ef viljinn er fyrir hendi, setjum okkar markmið að draumum okkar en gætum þess þó að markmiðin séu raunhæf því óraunhæf markmið geta farið að brjóta okkur niður og við fjarlægjumst drauma okkar.  Gott slagorð eftir Anatole France segir „ Til að ná okkar hæstu markmiðum, verðum við ekki bara að framkvæma , heldur líka  að dreyma; ekki aðeins að plana, heldur líka að trúa“.

Lifum í núinu
Við höfum bara þessa stund og gerum sem best úr henni. Hættum að láta hugann vera sífellt við ókláruð verk eða ógreidda reikninga. Hver dagur er vinningur í lífsins lottóin og það er um að gera að reyna að njóta hverrar stundar, því við vitum ekki hversu langur lífsins spotti er.

Verum sátt í eigin sinni
Við erum einstök (nema að við eigum eineggja tvíbura) og það er enginn annar á þessari jörð eins og við. Ekki reyna að vera eins og einhver annar, því þú getur bara verið þú sjálf/ur. Sigrum okkur sjálf í stað þess að reyna að sigra heiminn eða vera á flottari bíl en nágranninn, skorum á okkur sjálf og látum lífið vera skemmtilega áskorun. Ekki halda að grasið sé grænna hinu megin, ræktaðu heldur grasið hjá þér sjálfum. Við erum öll mannleg, með okkar bresti og enginn er fullkominn, ef einhver sýnist fullkominn þá er sá/sú líklega bara góður að fela sína veikleika.

BROSUM – Besta heilsuráð í heimi 🙂

 

Related posts

Bleik október hugleiðing

Snyrtivörur og aðrar eitraðar vörur í umhverfi okkar

Forvarnir okkar eru að falla – Fljótum sofandi að feigðarósi