Aukið frelsi – aukin hamingja – Helgarnámskeið 2. – 4. nóvember

Rósa Richter sálfræðingur og listmeðferðarfræðingur stýrir þessu námskeiði sem haldið er á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði helgina 2.-4.nóvember.

Námskeiðið hentar þér;                                                                      
ef þú hefur endurtekið reynt að breyta óæskilegri hegðun eða mynstri en hefur svo dottið í sama farið aftur og aftur og ert tilbúin að skoða rót vandans og fást við hann með nýjum og öflugum verkfærum.

Námskeiðið mun gera þér kleift að öðlast dýpri skilning á því sem liggur á bak við hegðunina og gefa þér verkfæri til að vinna bug á henni.

Rósa mun veita fræðslu um hvernig skaðleg hegðun verður til, hvernig hún festist í sessi og hvaða leiðir hafa reynst best til að vinna bug á henni. Í EMDR úrvinnslunni, sem er stór partur af námskeiðinu, rifjast gjarnan upp minningar, myndir eða tilfinningar sem þú gerðir þér ekki grein fyrir að tengdust hegðuninni. Það myndast nýr og dýpri skilningur á stöðunni og oftar en ekki vaknar von og aukin samkennd í eigin garð. EMDR vinnan krefst þess ekki að þú deilir upplifun eða reynslu þinni með öðrum þátttakendum. Hver og einn ræður hverju hann deilir með hópnum. Vinnan krefst hinsvegar að þátttakandi sé búin að ná lámarks jafnvægi. Rósa mun eiga heyra símleiðis í þeim sem vilja taka þátt í námskeiðinu.

EMDR stendur fyrir „Eye Movement Desensitization and Reprocessing„. Hér er tengill að síðu sem útskýrir hvað EMDR er: www.emdr.is

EMDR vinna krefst lágmarks andlegs jafnvægis.

– takast á við rót vandans. 
Ótal samanburða rannsókna hafa sýnt fram á að EMDR er hraðvirkasta meðferð sem völ er á þegar fólk er að fást við smá eða stór áföll. Stofnanir eins og WHO (Alþjóða Heilbrigðisstofnunin) eða APA (Samband geðlækna í Bandaríkjunum) mæla með EMDR meðferð sem fyrsta vali fyrir úrvinnslu áfalla, atvika eða upplifana sem áttu sér stað í fortíðinni en hafa ennþá töluverð áhrif á lífsgæði viðkomandi. Hegðunarmynstrið sem þú hefur átt erfitt með að losa þig við á að mestu líkum uppruna sinn í slíkri upplifun.

– læra aðferð sem mun hjálpa þér að breyta hegðuninni.
Rósa mun kenna þér einfalda en mjög virka aðferð til að fást við erfiðar tilfinningar. Aðferðin byggir á því sem kallað er „Tapping“ eða „Emotional Freedom Technique“. Vísindalegar rannsóknir hafa sýnt fram á virkni þessarar aðferðar í að minnka kvíða, auka öryggiskennd, hjálpa í baráttunni við ýmsa fíkn og í að bæta sjálfsstjórn.

– öðlast innri ró og frið með hjálp hugleiðslu og slökun.
Rósa mun veita fræðslu um hlutverk núvitundar í bættri líðan og kenna hugleiðsluaðferð sem einfalt er að tileinka sér og nota í daglegu lífi. Hugleiðslan mun eiga sér stað bæði inni og úti í náttúrunni. Einnig mun vera boðið uppá yndislega slökun með flothettum í sundlauginni.

– hafa gaman, leika þér og sleppa tökunum. 
Þa þarf ekki að vera leiðinlegt að vinna í sjálfum sér, og langt í frá! Á námskeiðinu verður sungið, dansað, leirað, málað, hlegið og sköpunarkraftinum gefinn laus taumur. Listin kallar fram allan tilfinningaskalann og endurvekur barnið og skapandann sem býr innra með okkur.

láta dekra við þig:
Gefðu þér frí frá hversdags amstrinu, húsverkunum og eldamennskunni og láttu dekra við þig á Heilsustofnun.

Verð: 
Námskeið með gistingu 59.000 kr. (allir málsverðir innifaldir)
Til að bóka, þá má senda póst á heilsa@heilsustofnun.is eða hringja í síma 4830300

Um Rósu Richter

Rósa Richter er menntaður sálfræðingur og listmeðferðarfræðingur.

Nálgun hennar sameinar vestrænar meðferðir eins og EMDR og listmeðferðarfræði og aldargamlar leiðir eins og andlega iðkun, hugleiðslu, reiki heilun og jóga.

Undanfarin ár vann Rósa sem sálfræðingur á Heilsustofnun ásamt því að reka sálfræðistofu í Reykjavík. Á því tímabili framkvæmdi hún rannsókn sem skoðaði rök fyrir meðferð sem sameinar EMDR og listmeðferð. Í framhaldinu af þeirri rannsóknarvinnu þróaði hún áfallameðferð fyrir hópa sem boðið var uppá á Heilsustofnun. Hóparnir voru mjög vinsælir og í vitnisburðum þeirra töluðu þátttakendur um djúpa og áhrifamikla vinnu í öruggu og hlýju umhverfi sem Rósa bauð uppá.

Rósa býr í Reykjavík og nánari upplýsingar má finna á https://www.rosarichter.net 

Þetta er helgarnámskeið frá föstudegi til sunnudags. Innifalið er ljúffengur og hollur matur, gisting í tvær nætur, fræðslahóptímar, slökun, aðgangur að sundlaugum/baðhúsi og líkamsrækt.

Related posts

Bleik október hugleiðing

Snyrtivörur og aðrar eitraðar vörur í umhverfi okkar

Vel heppnuð matþörungaferð