Aðalfundur NLFR í Ástjarnarkirkju

Ingi Þór Jónsson og Brynja Gunnarsdóttir voru endurkjörin í stjórn Náttúrulækningafélags Reykjavíkur á aðalfundi NLFR sem haldin var í Ástjarnarkirkju í Hafnarfirði 18. mars 2026.

Ingi Þór Jónsson sem er formaður NLFR kynnti skýrslu stjórnar og fór yfir reikninga félagsins. Að umræðum loknum voru skýrsla stjórnar og reikningar félagsins samþykkt samhljóða. Fundarstjóri var Þröstur Sigurðsson.

Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum hélt Hafdís Hrund, stofnandi og eigandi Fargufu erindi undir yfirskriftinni „Gufugusur – Heilsufarslegur ávinningur gufugusa, gufubaða og sjóbaða.“

Mynd: Pálmi Jónasson

Related posts

Pasta með ólífum, kapers og harissa

Gjörunnin matvæli og lífsstílssjúkdómar

„Grét í koddann eða fékk sér rauðvínsglas“