Streita, áföll og taugakerfið

„Streita, áföll og taugakerfið. Leiðir til jafnvægis,“ er heiti á námskeiði sem haldið verður á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði 25. febrúar til 1. mars. Þetta námskeið hefur notið mikilla vinsælda en umsjón með því hafa Margrét Grímsdóttir hjúkrunarfræðingur og félagsráðgjafi og Sigrún Sigurðardóttir doktor í hjúkrunarfræði.

Markmið námskeiðsins er að finna og efla eigin styrk til að takast á við og vinna úr einkennum áfalla og langvinnrar steitu. Unnið er með taugakerfið með fræðslu, hugleiðslu, jóga nidra djúpslökun, áfallajóga, náttúrugöngu í núvitund, slökun í vatni og samtali.

Related posts

Gufugusa á aðalfundi NLFR

Verulega aukin lífsgæði eftir Covid endurhæfingu

Óhollustuskattur