„NLFÍ ekki fengið greitt eins og þeir ættu að fá“

„Það er alveg rétt að sumt hefur maður ekki efni á að gera og sumt hefur maður ekki efni á að gera ekki,“ sagði Alma Möller heilbrigðisráðherra í seinna svari sínu í fyrirspurnartíma á Alþingi 22. september. „Ég tek undir að endurhæfing er gríðarlega mikilvæg. Sjúkratryggingar hafa það hlutverk annars vegar að sjá til þess að við öll fáum þá þjónustu sem við eigum rétt á en líka að gæta hagsmuna skattgreiðenda. Eins og ég segi þá er unnið að því að fara yfir málin. Þetta er tiltölulega nýkomið upp með NLFÍ. Þeir hafa ekki fengið greitt eins og þeir ættu að fá.“

Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins og 2. þingmaður Suðurkjördæmis sagði í seinni ræðu sinni að það væri kostnaðarsamt að gera ekki neitt. Endurhæfing skilaði fólki hraðar aftur til vinnu, drægi úr veikindakostnaði og létti á bráðaþjónustu. „Sjúkratryggingar hafa bent á að greiðslur standi ekki undir raunkostnaði en samt er haldið í ástand þar sem þjónustan hangir á bláþræði. Þess vegna spyr ég ráðherra aftur: Ætlar ráðherra að axla forystu og snúa þessum ráðahag við með skýrri ákvörðun um vernd endurhæfingar og stuðnings, þar á meðal Ljóssins og Heilsustofnunar Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragerði? Eða er afstaða ríkisstjórnarinnar sú að láta sjúklinga, fjölskyldur og vinnumarkaðinn greiða reikninginn fyrir forgangsröðun sem einfaldlega stenst enga skoðun?“

Í fyrri ræðu sinni sagði Guðrún að endurhæfing væri ekki jaðarmál í heilbrigðiskerfinu heldur lykilþáttur þess að sjúklingar nái heilsu, komist aftur til vinnu og losni af biðlistum. „Því vek ég athygli á þjónustusamningi um hið mikilvæga endurhæfingarstarf Heilsustofnunar Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragerði en enginn samningur er í gildi og viðræður hafa staðið yfir í langan tíma án niðurstöðu. Á sama tíma liggur fyrir hjá Sjúkratryggingum Íslands að greiðslur hafa ekki staðið undir raunkostnaði og talið vanta verulega fjármuni til að greiða fyrir þjónustuna sem veitt er.“

Alma Möller heilbrigðisráðherra tók undir mikilvægi endurhæfingar sem skilaði sér margfalt til samfélagsins. „Það er hins vegar þannig að það hefur ekki verið raunvöxtur í undanförnum fjárlögum og þessi þjónusta hefur sætt aðhaldi. Ég hef talað fyrir því að svo megi hlutirnir ekki vera og held því áfram. En það sem ég tók mjög fljótt eftir þegar ég kom inn í heilbrigðisráðuneytið í upphafi ársins er að það er ekki nægilega vel skilgreint hvað heilbrigðistengd endurhæfing er. Þar setti ég þegar í stað af stað vinnu um að skilgreina það og svokölluð hvítbókarvinna er í gangi og hún verður kynnt á heilbrigðisþingi sem helgað verður endurhæfingu. Það er alveg rétt að það er gagnrýni á hvernig fjármunum hefur verið útdeilt til mismunandi stofnana og Náttúrulækningafélagið hefur gagnrýnt það. Þetta er ekkert nýtt, þetta er búið að vera til margra ára en auðvitað þarf að laga það.“

Related posts

Niðurstöður Heilsustofnunar kynntar á aðalfundi ESPA

Viðurkenning fyrir framúrskarandi starf í Hveragerði

Uppbókað í tvö matreiðslunámskeið