Fljótlegur og bragðmikill lax í indverskri karrýsósu. Uppskriftin er upphaflega úr smiðju Romy Gill en þar er gert ráð fyrir hvítum fiski. Ég einfaldaði uppskriftina líka svolítið. Borið fram með hrísgrjónum og heimagerðu naan brauði.
Karrýsósa:
- 5 msk olía
- 2 laukar
- 3-4 cm engifer
- 4 hvítlauksrif
- 2 rauð chili
- 1 lime, börkurinn
- 1 msk kóríanderduft
- 1 msk túrmerik
- 2 dósir kókosmjólk
- 1 tsk sjávarsalt
Fiskur:
- 1 kíló lax
- 1 lime, safinn
- 1 tsk túrmerik
- 1 tsk sjávarsalt
- 2 msk olía
- 1 msk sinnepsfræ
- 1 lime, börkurinn
- 1 rautt chili
- Ferskt krydd
Aðferð:
- Skerið lauk, engifer, chili og hvítlauk og látið malla í potti eða pönnu í 8-10 mínútur. Bætið lime berki, kóríander og túrmerik og eldið í 1-2 mínútur. Setjið kókosmjólk og salt í karrýsósuna og eldið í 5 mínútur. Þeir sem vilja silkimjúka sósu setja hana í blandara.
- Laxinn er settur í skál með lime safa, túrmerik og salti. Steikið fiskinn með roðhliðina niður í um 3 mínútur. Setjið sinnepsfræin á pönnuna, snúið fiskinum og steikið í 2 mínútur. Hellið heitri karrýsósunni yfir og látið malla í 2-3 mínútur.
- Skreytið með chili og ferskum kryddjurtum, t.d. kóríander, basil eða myntu. Limesneiðar til skrauts. Borið fram með hrísgrjónum og heimagerðu naan brauði.
Myndir: Pálmi Jónasson