Blómkálsbaka

Blómkálsbaka úr tilraunaeldhúsi Ottolenghi. Blómkál, sinnep og cheddar. Filodeig virðist ófáanlegt um þessar mundir svo ég notaði í staðinn einn pakka af smjördeigi.

Þú þarft:

  • 1 Blómkál
  • 1 msk karrýduft
  • 3 msk olía
  • 100 ósaltað smjör
  • 75 g hveiti
  • 675 ml mjólk
  • 3 hvítlauksrif
  • 2 msk sinnep
  • 150 g cheddar
  • 6 blöð filodeig
  • Salt og pipar
  • Steinselja
  • Sítrónubörkur

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 180 gráður og setjið bökunarpappír í botn og hliðar á smelluformi.
  2. Skerið blómkálið í bita og bætið við karrý, salt, pipar og 2 matskeiðum af olíu. Setjið í ofnskúffu með bökunarpappír og bakið í 20 mínútur.
  3. Bræðið smjörið í potti og steikið með hveitinu í um 2 mínútur eða þar til kemur hnetuangan. Lækkið hitann og bætið mjólkinni smám saman við. Hrærið stöðugt og látið malla í um 7 mínútur. Takið af hitanum og bætið við hvítlauk, sinnepi osti og smá salti. Hrærið blómkálinu saman við.
  4. Setjið filódeigið í smelluformið og penslið blöðin jafnóðum með olíu eða notið smjördeig. Hellið blómkálssósunni út í og hálflokið með filodeiginu eða skreytið með smjördeigsafskurði. Penslið með bráðnu smjöri og bakið í um hálftíma. Losið þá hliðar smelluformsins frá og bakið áfram í 20-25 mínútur. Látið hvíla í 15 mínútur.
  5. Skreytið með steinselju og berki af einn sítrónu eða lime.

Myndir: Pálmi Jónasson

Related posts

Pasta með ólífum, kapers og harissa

Gjörunnin matvæli og lífsstílssjúkdómar

„Grét í koddann eða fékk sér rauðvínsglas“