Leikstjóri tekinn tali

Eins of fram hefur komið hér á síðunni er í bígerð heimildarmynd um Jónas Kristjánsson lækni og stofnanda Náttúrlælningafélags Íslands. Myndin er í tilefni að því að 150 ár eru frá fæðingu Jónasar á þessu ári.
Okkur hjá NLFÍ lék forvitni á því að vita hvernig vinnan við myndina gengi og tókum því leikstjóra myndarinnar tali. Leikstjórinn er ungur og efnilegur og heitir Guðjón Ragnarsson. Hér er viðtal sem ritstjóri tók við Guðjón á dögunum.

Hver er Guðjón Ragnarsson?
Best væri nú að spyrja einhvern mér nákominn en ég skal reyna. Ég er 27 ára og hef elskað bíómyndir og tónlist síðan ég man eftir mér. Ég er ættaður að norðan og austan en ólst upp í Garðabæ. Ég byrjaði að vinna í kvikmyndagerð þegar ég var 13 ára og hef aldrei kvikað frá því. Ég lærði leiklist við New York Film Academy (NYFA) í Los Angeles þar sem ég bjó um hríð. Ég kláraði síðan þrjár annir af fjórum í Kvikmyndaskóla Íslands á handrits- og leikstjórnarbraut eftir að ég flutti heim frá Kaliforníu. Í dag vinn ég sjálfstætt sem leikstjóri, handritshöfundur og leikari. Ég elska fólkið mitt, Ísland, Stanley Kubrick og vinnuna mína.

Hvernig kom það til að þú tókst að þér þetta verkefni?
Margrét Jónasdóttir framleiðandi hjá Sagafilm, kallaði mig á fund og sagði mér frá verkefninu. Við höfum unnið saman í þrjú ár við gerð á annarri heimildarmynd. Ég heillaðist strax af sögu Jónasar Kristjánssonar og hef alltaf verið forvitin um Heilsuhælið í Hveragerði. það leið ekki á löngu þar til ég var kominn um borð. Þetta var aldrei spurning fyrir mig. Það er alltaf mikill heiður að fá svona beiðni frá framleiðanda. Orð fá því ekki lýst hvað ég er þakklátur Margréti fyrir það að hafa trú á mér í þetta verkefni. Hún er ekki bara vinur og samstarfskona, hún er einnig fyrirmynd mín og mentor.

Hvernig hefur gengið að vinna að heimildarmyndinni? 
Það hefur verið einstakt að byrja þetta verkefni út af ástandinu í þjóðfélaginu en undirbúningur gengur mjög vel. Ég fór í fjóra daga á Sauðárkrók og náði góðu myndefni af bænum og firðinum öllum í vetrarbúningi. Ég var þess heiðurs aðnjótandi að fá að kynnast Jóni Ormari Ormarssyni og gaf hann mér mikla og nákvæma innsýn í líf Jónasar og Sauðkrækinga yfir höfuð. Jón Ormar var svo örlátur á tíma sinn og hjálpsamur að ég varð hálf klökkur þegar ég kvaddi hann fyrir utan gamla sjúkrahúsið við Aðalgötuna á Króknum áður en ég keyrði heim. Hann gerði ferðina ógleymanlega og betri byrjun á ferlinu hefði ég ekki getað óskað mér. Núna er ég að undirbúa að fara á fullt í tökur. Það verður spennandi að kynnast viðmælendunum. 

Hvenær áttu von á því að hún verði frumsýnd?
Hún verður frumsýnd í september á þessu ári. (Innskot ritstjóra: 150 ár eru frá fæðingu Jónasar Kristjánssonar 20.september).

Hefur eitthvað komið þér á óvart í þessari vinnu?
Ævi Jónasar er klárlega ein sú merkilegasta á 19. og 20. öldinni. Það hefur komið mér talsvert á óvart að læra hvað hann var langt á undan sinni samtíð. Hvernig hann vann og dugnaðinn sem skein í öllum hans verkum. Það er magnað að læra um landið sitt í gegnum þessar sögur. Ég veit að þessi saga mun hafa áhrif og jafnvel hvetja fólk til að taka ábyrgð á eigin heilsu. Ég get ekki beðið um meira sem leikstjóri en tækifæri til að ná því fram.

Þekktir þú til Jónasar Kristjánssonar áður en þú tókst þetta verkefni að þér?
Nei ég viðurkenni það fúslega að ég hafði aldrei heyrt af honum fyrr en í janúar á þessu ári.

Hugar þú sjálfur mikið að heilsu þinni? 
Síðan ég var 18 ára hef ég mikið hugsað út í mataræði og hreyfingu. Ég stunda yoga (þegar það er í boði) og vinn í að styrkja mig. Ég hjóla mikið á sumrin, er góður sundmaður og hleyp líka reglulega. Mataræðið er klárlega það sem er mér erfiðast en best líður mér þegar ég sleppi sykri og borða lítið kjöt.  Kærasta mín er vegan og ef ég fylgi henni þá líður mér best.

Related posts

Gjörunnin gervimatvæli eru að rústa heilsu okkkar á methraða

Náttúrulækingar og „ólækningar“

100 ár frá tímamóta fyrirlestri Jónasar Kristjánssonar læknis og frumkvöðuls.