Ályktanir 35. landsþings NLFÍ

35. landþing NLFÍ var haldið á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði laugardaginn 19.september síðastliðinn.

Eftirfarandi ályktanir voru samþykktar  á þinginu:

Erfðabreyttar lífverur – ræktun erfðabreyttra plantna á Íslandi
Landsþing NLFÍ hvetur stjórnvöld til að banna með öllu útiræktun á erfðabreyttum lífverum og undirbúa að Ísland verði sem fyrst lýst land án erfðabreyttra lífvera.

Erfðabreyttar lífverur – innihaldslýsingar
Landsþing NLFÍ hvetur stjórnvöld til þess að tryggja með auknu eftirliti og eftirfylgni að innflytjendur og framleiðendur hlíti ákvæðum reglugerðar um merkingar á matvælum sem framleidd eru úr erfðabreyttum lífverum og afurðum þeirra.

Lífrænt vottuð framleiðsla
Landsþing NLFÍ hvetur stjórnvöld til að móta stefnu um eflingu lífrænnar framleiðslu á Íslandi og að taka upp skipulegan stuðning við lífræna aðlögun í landbúnaði. Vísindalegum rannsóknum fjölgar sem sýna fram á að lífrænar aðferðir auka langtíma hagkvæmni í framleiðslu, hafa jákvæð áhrif á lífríki og umhverfi, auka næringarefnainnihald matvæla og stuðla að bættu heilsufari. Matvara með lífræna vottun er án erfðabreyttra afurða.

Börn og unglingar
Landsþing NLFÍ hvetur stjórnvöld til að gera öllum leik- grunn- og framhaldsskólum kleift að kenna leiðina til heilbrigðis. Heilsueflandi samfélag er lykill að árangri. Hæfileg hreyfing, nægur svefn, hvíld, hollt mataræði og jákvæð félagsleg gildi eru lykill að velferð þessa hóps.

Viðbættur sykur og unnin kolvetni
 Landsþing NLFÍ varar við miklu framboði á vörum með viðbættum sykri og unnum kolvetnum. Landsþingið hvetur söluaðila til að fjarlægja sælgæti frá afgreiðslukössum og draga úr auglýsingum matvara sem ríkar eru af viðbættum sykri og unnum kolvetnum. Framfylgja þarf undantekningalaust reglum um merkingar á umbúðum matvæla um magn viðbætts sykurs.

Áfengi og önnur vímuefni
Landsþing NLFÍ  hvetur  til aukinnar fræðslu í grunn- og framhaldsskólum um skaðsemi áfengis og annarra vímuefna. Landsþingið skorar á stjórnvöld að fylgja eftir banni við áfengisauglýsingum og herða viðurlög á brotum gegn þeim.

Tóbak
Landsþing NLFÍ fagnar þeim árangri sem náðst hefur í tóbaksvörnum á Íslandi og hvetur stjórnvöld til að taka skrefið til fulls og banna reykingar á almannafæri.

Hefðbundnar og óhefðbundnar lækningar
Landsþing NLFÍ hvetur til aukinnar samþættingar hefðbundinna lækninga og viðbótarmeðferða. Með viðbótarmeðferð er átt við meðferð sem ekki hefur verið talin hluti af hefðbundinni heilbrigðisþjónustu en sýnt hefur verið fram á með rannsóknum að nýtist samhliða hefðbundinni meðferð eða sem sjálfstæð meðferð.

Umhverfi
Landsþing NLFÍ minnir á að hreint náttúrulegt umhverfi er mikilvægur þáttur í lífi og heilsu fólks. Landsþing NLFÍ  hvetur stjórnvöld til að standa vörð um ósnortin víðerni í náttúru Íslands.

Related posts

Nýr pistlahöfundur

Gleðilegt nýtt ár

Ályktanir 39. landsþings Náttúrulækningafélags Íslands